Blondyes
25.02.2007 19:26:25 / blondyes

Endalok

 

jújú svo virðist vera að þessi síða sé dauð... held að my space sé málið...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 18:47:22 / blondyes

Loksins

Jæja vegna gífurlegra eftirspurna og þrýstings þá hef ég loksins komið því í gang að henda inn myndum....

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=14660346&uid=7766297&members=1

já þetta er samt rétt svo forsprakkurinn (held að maður segir það) að því sem á eftir að koma þanngi að ég bið ykkur um að sýna enn meiri þolonmæði :)en annars er allt gott að frétta... Skólinn byrjaður og mér líst svona bara allt í lagi á þetta... loksins byrjuð í fögunum sem maður hefur áhuga af en reyndar er ekki metnaðurinn kominn á fullt en hann kemur vonandi fyrr eða síðar ;)

en allavega njótið myndanna

Kv.Stálmúsin


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 19:26:03 / blondyes

árið....

Já viti menn er ekki bara gamlársdagur runnin í garð og árið að ljúka... en ekki örvænta við tekur árið 2007 og efast ég nú ekki um að það verði af verri endanum....

en allavega þá er þetta ár búið að vera frábært... margt stendur uppúr og er auðvitað ógleymanlegar minningar....

La Manga, Rúmenía, Danmörk og ekki síðast en síst Costa del Sol var án efa með betri ferðum...

Eyjar 2006 ein skemmtilegasta helgi sem ég hef upplifað og verður stefnan tekin þangað árið 2007 tvímælalaust...

Sumarið 2006 the best days of my life ;) : margt þaðan stendur uppúr, "vinnan" var snilld, fótboltinn stóð fyrir sínu, Landsbankadeildin á næsta ári, Costa (þarf ekki að segja meira), djammið og margt margt fleira....

Sem sagt þetta ár var frábært í alla staði og vil ég óska öllum gleðilegt nýtt ár og takk æðislega fyrir það liðna... Megi nýja árið toppa það gamla ;)

Gangið hægt en vel um gleiðinnar dyr í kvöld...

Kv.Kristrún :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 17:57:55 / blondyes

Jólin

Jæja ég vildi bara óska ykkur allra gleðilegra jóla og hafið það sem allra best yfir hátíðirnar....

Njótið lífsins og verið góð við hvert annað ;)

Jólakveðja Kristrún :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 22:58:18 / blondyes

Kveldið gott fólk...

Jæja þá situr maður hér eftir tja segjum ágætan dag.... jújú prófin byrjuð að rúlla og er ég búin í 2 prófum... af 6.... mér hefur nú bara gengið þokkalega hingað til og hef eigilega ekki neitt til að kvarta yfir... nema kannski einu... svo vill til að þegar prófin nálgast fara nemendur að grúa yfir bókum sínum í tíma og ótíma... jú ég er ein af þessum námsmönnum og hef ég nú ekki alltaf komið vel úr þessum dvala.... eftir langa yfirsetu yfir bókum á ég það til að verða doldið einhverf... er búin að búa til nýja tegund af þessum sjúkdómi sem kallast... námseinhverfa.... aðal syndromið er að vera með endalausan einkahúmor og geta gert allt annað en að læra, t.d stara útí loftið og pæla í hinum ómerkilegustu hlutum... minniháttar einkenni eru líka endalaust snarl át og símhringingar sem leiðast út í hin ómerkulegustu samtöl....

En allavega þá er ég búin að vera að læra fyrir félagsfræðina í dag og var þessi skemmtilega pæling í bókinni... það var verið að tala um sjálfið... og spurningin er hvenar eruði þið sjálf? það er alltaf talað um að maður er í mismunandi hlutverkum, s.s nemandi, dóttir, vinur o.s.frv. og hagið ykkur mismunandi eftir þessum stöðum/hlutverki.... þannig að þið eruð í rauninni að leika þessi hlutverk en kannski ekki beint að representa ykkur sjálf... eða gera öll þessi hlutverk að ykkur sjálfum... eða eruði þið sjálf þegar þið eruð ein einhverstaðar og bara í chillinu.... er hægt að svara þessu?

skemmtileg pæling....

endilega commentið

Kristrún kveður


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 10:12:26 / blondyes

Enn á lífi....

jú þeir sem voru að hugsa... hvar eru þær... hvernig get ég lifað án þeirra... hvað á ég að gera... ekki örvænta gott fólk... við erum enn á lífi...

Helgin liðin og skólavika gengin í garð... gaman.. hver og einn má dæma um það ;)

Þar sem ég er búin að vera í stærðfæðitíma seinustu 42 mínútur þá verðiði að afsaka að þetta verður steikt bloggg og að öllum líkindum innihaldslaust... allavega þá er ég búin að sitja hérna fyrir framan tölvuna seinustu 52 mínútur (frímínútur sjáið til).. .ég er gjörsamlega búin að skoða allar mögulega síður sem ég veit um... á kannski frekar að vera að hlusta á kennarann þar sem ég er ekki beint að meika það í þessari blessuðu exsel stærðfræði en það er einsog kennarinn sé að tala forn tungumál og mín háþróðuðu eyru geta ekki unnið sig í gegnum þetta og já þetta er líka svo leiðinlegt ;).....

en ég hefði kannksi átt að byrja á því að óska Oddný og Öldu til hamingju með afmælið í seinustu viku... nánar skilgreint þann 21. og 23. nóvember og auðvitað fengu þær bestu afmælisgjafir sem hægt er að hugsa sér... ást og umhyggja allha Kristrún ;)

Jæja með bros á vör og gleði í huga...

Kristrún kveður...


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 15:54:44 / blondyes

stutt og laggott

Gleðilega helgi og farsælt komandi chill....

jæja ætlaði nú bara að láta áhugasama vita að nýjar myndir frá djömmum í den (sep.) eru komnar í hús...

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=13673429&uid=7152470

blogg dettur inn seinna... :)

njótið

Stálmúsin kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 11:36:54 / blondyes

Tinna hér

Góðan daginn.

Hér er ég komin aldrei verið hressari og tilbúin að takast á við bloggheiminn. Ju Oddný gaf mér stórt spark í rassinn í gær og vitið hvað,, við mér blöstu þessar björtu opnu dyr sem leiða mig í átt til sigurs. Hversu lengi það endist munu vera ráðgátur næstu daga!!

Nuna er klukkan semsagt hálf 12 á sunnudagsmorgni. Ég nýkomin heim af púl æfingunni frægu sem byrjaði klukkan 9 í morgunn, ekki sú hressasta. Til að bæta ofan á það lítur út fyrir lærdóm til 10 í kvöld... lífið er semsagt sem súrast og hægt er. Ætla annars ekki að telja upp líf mitt mínútu fyrir mínútu heldur langaði mig bara að skutla einni færslu hér inn.

Hef margt að rifja upp og von bráðar verður þetta hið fallegasta,

glatað ja ég veit.. þangað til næst



» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 22:30:32 / blondyes

Hitt og þetta

já þar sem hinir dyggu aðdáendur okkar eru búnir að vera að kvarta um bloggleysi ákvað ég að sparka í rassinn á mér og skella inn einu stykki... hversu góð sú færsla verður... það veit ég ekki... ;)

en allavega þá er bara allt gott að frétta af mínum bæ... reyndar er skólinn búinn að vera að hlaða einhverjum prófum og verkefnum á mann sem ætti að banna... allavega að takmarka fjöldann á viku... í þessum einu málefnum má taka verzló til fyrirmyndar þar sem má einungis hafa 3 próf á viku (held ég).. en til að mynda er ég búin að fara í 2 munnleg próf, stærðfræðipróf, fyrirlestur í náttúrufræði og á eftir 1 enskupróf í þessari viku.... all svakalegt.. en maður "massar" þetta bara... ;)

ætlaði að segja helling meira en man ekki neitt...

en jæja er komin með ritstíflu... lofa að koma bráðum með betra blogg....

Kv.Kristrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 20:45:10 / blondyes

Staðreynd...

Jæja loksins kemur eitthvað nýtt inná þessa síðu en ég er ekki frá því að hér eru lötustu bloggarar á ferð....

en allavega einsog glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir þá er fyrirsögnin hér að ofan staðreyndir...sem sagt ætla ég að koma með 2 staðreyndir sem hafa nú verið þraultékkaðar í mínu lífi....

Staðreynd nr.1: Pronto er snilldar staður (sérstaklega beint að Helenu), fór núna í vikunni og auðvitað brögðuðust pizzurnar vel...

Staðreynd nr.2 (varð að bæta þessari inn því þetta er jú að vísu staðreynd) Mýrin (já Tinna þetta er kvikmynd) er snilld... ein af fáum íslenskum myndum sem ég er að fíla þvílíkt... hehe dýrka kaldhæðna húmorinn í henni... :)

Staðreynd nr.3 í kringum árin hefur alltaf verið sagt að fólk sem er að æfa eitthvað gengi yfirleitt betri í skóla....ég er ekki frá því að þetta er satt.... eða allavega er mín persónulega reynsla að nú undanfarið hef ég verið í fríi í rúma 2 mánuði í fótboltanum og hef ég aldrei á æfinni eytt svona litlum tíma í skólalærdóm... ég bara hef ekki þolinmæði í þetta... það er einsog mig vanti einhverja útrás til þess að ég geti svo komið heim og sest í rólegheitunum yfir heimalærdóminum...

Jæja þá held ég að þetta sé bara komið... endilega gott fólk komið með einhverjar staðreyndir á móti í skoðunum....

Kv.Kristrún

Lag vikunnar: I know - Jet Black Joe


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 19:09:35 / blondyes

Jæja....

Nenni því miður ekki að blogga núna en ætlaði bara að setja myndirnar frá KSÍ inn...

Njótið...

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=13271157&uid=6919951

Kv.Kristrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 00:06:33 / blondyes

Helgin

jæja nú er föstudagskvöldið runnið í garð og langþráð helgi byrjuð. Ég sit hér í leti mínu heima í stofu og hef ekkert betra en að blogga... slappt já ég held það... en ég hef afsökunina að safna kröftum fyrir morgundaginn jújú mikið rétt... KSÍ lokahófið og höfum við Fjölnisstelpur auðvitað ákveðið að fjölmenna á það og skemmta okkur konunglega....

 

Þótt ótrúlegt sé (þetta á eftir að koma góð vinum mínum á "óvart") þá er ég eigilega ekkert byrjuð að pæla í þessu... jú kannski það eina er að ég kom mér loksins í það að kaupa mér miðann í dag... ekkert dress komið né neitt... en eitt er víst að mínir fögru leggir verða því miður ekki opinberaðir (kaldhæðni já) af sökum tvöfalds hnés... og að háhælaðir skór verða ekki á lista mínum þetta kvöld af sökum þess að blessuðu krónísku bólgum í kálfunum sem eru sprottnar aftur upp... vel gert Kristrún og undirbúningstímabilið ekki einu sinni byrjað...

 

Burt séð frá krónískum bólgum og tvöfalds hnés þá er bara allt gott að frétta á mínum bæ... vorum að keppa fyrsta leikinn í Haustmótinu í 2.fl áðan (sem orsakaði btw hið tvöfalda hné) og gekk bara nokkuð vel.. unnum Þróttarana 3-1... Skólinn er svo alltaf á sínum stað og gengur bara ágætlega, reyndar mikið að gera en þó skárra en að sitja heima í aðgerðarleysi sínu :) Fótboltinn er reyndar ekki farinn að rúlla en það kemur vonandi sem fyrst en er hins vegar byrjuð að þjálfa 8.flokk barna og 6.flokk kvenna sem er algjör snilld, lúmskt erfitt en gamanið er þess virði ;)...

 

en jæja þeir sem hafa uppástungur um dress fyrir mig annað kvöld endilega komentið annas vænti ég þess að sjá ykkur hress á KSÍ eða niðrí bæ annað kvöld... :D

 

Krónísk Kristrún kveður....


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 09:22:53 / blondyes

Loksins

jæja ég náði að henda nokkrum myndum inn frá Bílskúrspartý hjá Sonný... en ég á nú eftir að setja helling af fleiri myndum inn þannig að bíðið bara róleg....

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=13105461&uid=6824002

Annars er allt gott að frétta héðan... Chill helgi dauðans er nýliðin sem einkenndist af svefni, sjónvarpi og fótbolta... er reyndar hissa á að ég lifði helgina af sökum meira en mánaðarfrís í fótbolta.... En meina gott að safna kröftum fyrir næstu helgi... KSÍ lokahófið á næstu grösum og ef ég þekki fjölnisstelpur rétt verður meira en stuð ;)

Kv.Kristrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 20:49:18 / blondyes

Jæja...

já þótt ótrúlegt sé þá er lokahóf Fjölnis búið... í smáatriðum var dagurinn þannig....

  • leikmenn vs. ráðið
  • hestaferð með mfl.kk
  • stokkið heim í sturtu
  • fjörið uppí Fjölnishúsi byrjaði kl.7

Já þetta var bara snilldar dagur... vil þakka öllum sem þarna voru fyrir frábæran dag og magnað kveld... ;) ég læt svo bara myndirnar tala máli sínu...

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=12895059&uid=6698279

en ætlaði nú ekki að láta þessa færslu fjalla  um Lokahófið heldur ætlaði ég að tileinka færslunni hinum fræknu Spánarförum... já viti menn nú missir mfl.kvk Fjölni mikilvæga hlekki í um 2 og hálfan mánuð... jújú Helkon og Sonsa eru að kveðja frónið á vit ævintýranna...

Jæja stelpur mínar ég vildi bara þakka ykkur fyrir FRÁBÆRT sumar... fótboltalega og félagslega séð... ;) góðar stundir á æfingum, Kofanum, Stylnum, Eyjar og margt fleira ;) en allavega góða ferð og skemmtið ykkur ærlega úti ;)

ég og Helena eyja-roomies ;)

ég og Sonný Grindófellufélagar ;)

Kv.Kristrún

P.s fleiri myndir eru væntanlegar t.d frá bílskúrpartýum hjá Sonný og Örnu, bjórkveldi og fleira... :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 15:49:35 / blondyes

Tími til kominn...

já ég er ekki frá því að það er langt síðan maður öpdeitaði (sona á góðri íslensku) hérna á síðuna...

en núna er nottla skólinn löngu byrjaður og ég er ekki frá því að maður er strax byrjaður að mygla.... ég sem hélt að ég hefði valið sállfræði og uppeldisfræði sem kjörsvið en svo kemur í ljós að á þessari önnn er ég í hvorugu af þessu... en engar áhyggjur þessa dagana gleðja tölfræði með tölvum mig alveg óendanlega mikið... (*hóst kaldhæðni*) ;) hehe erum reyndar búin með fyrstu 3 kaflana í bókinni og ég loksins fór og keypti bókina í gær... metnaðurinn skín í gegn ;)

já og svo hvað er pælingin á bakvið íslandsklukkuna?? er reyndar bara búin með fyrstahlutann... og það sem kom mér strax fyrst í huga.. afhverju í ósköpunum bókin heitir Íslandsklukka.. fyrsta blaðsíðan er reyndar um einhverja klukku en svo er hann Jón Hreggviðsson aðalgaurinn... ekki beint að fatta... en annars ágætis bók þar á ferð... :)

en frá þunglyndismálum yfir í annað skemmtilegra ;) ég er ekki frá því að maður sé búinn að missa sig í gleðinni undanfarið og er pælingin hjá mér að færa lögheimil mitt inná kofann ;)

En annars er það sem við fjölnisstelpurnar bíðum SPENNTAR eftir... (erum reyndar búnar að bíða í 1 ár eftir þessu) er Fjölnislokahófið... jébbs það verður núna á laugardaginn og er beisiklíið fyllerí allan daginn... sem er nottla ekki slæmt þema fyrir þessa drykkjuhrúta ;)

en annas kveð ég í bili

Kv.Kristrún

P.S myndir frá síðustu helgum koma bráðum... eða þegar ég læri á þetta myndavéladæmi... :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8